Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki valinn besti leikstjórnandi Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi að ósekju, enda fór það svo að hann var stoðsendingahæsti leikmaður mótsins.
Gísli Þorgeir, sem var valinn í úrvalslið EM sem leikstjórnandi fyrir bronsleikinn gegn Króatíu í gær, gaf alls 62 stoðsendingar í leikjunum níu og var þannig með sex fleiri en næsti maður, Mathias Gidsel, verðmætasti og markahæsti leikmaður mótsins.
Gísli Þorgeir er í úrvalsliði EM 2026
Gísli Þorgeir gaf því tæplega sjö stoðsendingar í leik að meðaltali á mótinu og skapaði þar að auki ógrynni færa til viðbótar sem ekki enduðu með mörkum.
Ísland með flesta á lista yfir þá markahæstu
Í tölfræðisamantekt Handknattleikssambands Evrópu, EHF, er auk þess að finna lista yfir 30 markahæstu leikmenn Evrópumótsins. Þar á Ísland flesta fulltrúa, fimm talsins.
Ómar Ingi Magnússon var markahæstur íslensku leikmannanna með 55 mörk og var fjórði markahæsti leikmaður mótsins. Aðrir sem komust á 30 manna listann eru Orri Freyr Þorkelsson, Óðinn Þór Ríkharðsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elliði Snær Viðarsson.
Íslensku leikmennirnir fimm sem komust á listann:
4. sæti – Ómar Ingi Magnússon, 55 mörk.
16. – 18. sæti – Orri Freyr Þorkelsson, 36 mörk .
19. – 20. sæti – Óðinn Þór Ríkharðsson, 35 mörk.
21. – 22. sæti – Gísli Þorgeir Kristjánsson, 34 mörk.
26. – 29. sæti – Elliði Snær Viðarsson, 32 mörk.



