- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gísli Þorgeir fór af leikvelli meiddur á vinstri öxl

Gísli Þorgeir Kristjánsson fór meiddur af leikvelli eftir þrjár mínútur. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Gísli Þorgeir Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik fór af leikvelli meiddur á vinstri öxl eftir tæplega þriggja mínútna leik í viðureign Magdeburg og Lemgo í þýsku 1. deildinni. Leikurinn stendur yfir þegar þetta er skrifað.


Óttast er að um alvarleg meiðsli sé að ræða samkvæmt frétt á handball-World. Má sjá Gísla fara miður sín af leikvelli í fylgd sjúkraþjálfara Magdeburg-liðsins. Bennet Wiegert þjálfari Magdeburg er sagður hafa hulið andlit sitt um stund vegna vonbrigða.

Gísli Þorgeir var að brjótast í gegnum vörn Lemgo þegar stjakað var við honum með þeim afleiðingum að hann lenti harkalega á vinstri öxlinni. Því miður hefur Gísli Þorgeir nokkrum sinnum meiðst alvarlega á báðum öxlum.


Magdeburg er í harðri baráttu um þýska meistaratitilinn þegar þrjár umferðir eru eftir auk þess sem liðið tekur þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu eftir tvær vikur.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -