Slavko Goluža, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari Króatíu, veiktist meðan hann var að stýra liði sínu RK Bjelovar í kappleik í heimalandi sínu um liðna helgi. Gekkst hann undir hjartaþræðingu í kjölfarið hvar í ljós kom stífla í kransæð.
Þegar tíu mínútur voru liðnar af leiknum í Bjelovar fann Goluža, sem er 54 ára gamall, til sárra verkja í brjóstholinu. Var hann í skyndi færður í búningsklefa liðsins og þaðan á sjúkrahús í Bjelovar. Að lokinni rannsókn var farið með Goluža á spítala í Zagreb hvar hann gekkst undir hjartaþræðingu.
Í tilkynningu sem Goluža sendi frá sér þakkaði hann fyrir skjót viðbrögð allra sem aðstoðuðu hann. Liðanin er eftir atvikum en ljóst að við tekur sjúkraþjálfun og frí frá þjálfun handknattleiksliðs RK Bjelovar.
Landsliðsmaður og þjálfari
Goluža er einn þekktasti handknattleiksmaður Króatíu síðustu 30 ár. Hann var í heimsmeistaraliði Króata 2003 og lék alls ríflega 200 landsleiki. Auk þess var hann landsliðsþjálfari frá 2010 til 2015 og hefur síðan þjálfað mörg félagslið heima og að heiman.


