Grétar Ari Guðjónsson, markvörður bikarmeistara Hauka, var fjarri góðu gamni þegar liðið vann Selfoss 35:27 í næstsíðustu umferð Olísdeildarinnar í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum á mánudagskvöld. Ástæðan fyrir fjarverunni var einföld; búferlaflutningar.
Grétar Ari flutist heim til Íslands frá Aþenu í Grikklandi í lok janúar en eins og kom fram í samtali við handbolta.is eftir úrslitaleik Powerade bikarsins í byrjun mars varð kona hans eftir í Grikklandi með hundana þeirra, enda flutningur á gæludýrum milli landa síst einfalt mál.
Hetja Hauka auðmjúk: Ég átti engan þátt í að koma okkur í bikarhelgina
Í samtali við Handkastið sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka að Grétar Ari hafi ekki verið með liðinu á mánudagskvöld vegna þess að hann væri staddur í Grikklandi til þess að ganga endanlega frá flutningum hingað til lands.
Reiknar Gunnar með því að Grétar Ari verði klár í slaginn fyrir leik Hauka gegn HK í lokaumferð Olísdeildarinnar í Kórnum annað kvöld.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


