- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grill 66-deild: Áfram tveggja liða hlaup

- Auglýsing -

Víkingar halda áfram efsta sæti Grill 66-deildar karla á sjónarmun eftir sigur á Fram 2 í Lambhagahöllinni í Úlfarárdal í kvöld, 31:21. Víkingur hefur 30 stig eftir 17 umferðir eins og Grótta sem lagði Val 2, 33:30, í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Sigurinn þótti torsóttur fyrir Gróttuliðið.

Önnur lið deildarinnar mega heita úr leik í keppninni um efsta sætið þegar fimm umferðir eru eftir. Efsta liðið fer beint upp í Olísdeildina í stað þess sem rekur lestina þar. Liðið sem hafnar í öðru sæti verður að gera sér að góðu að fara í umspilskeppni um sæti í Olísdeildinni.

Úrslit kvöldsins og markaskorarar

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Fram 2 – Víkingur 21:31 (11:17).

Mörk Fram 2: Gabríel Jónsson Kvaran 5, Kristófer Tómas Gíslason 5, Arnþór Sævarsson 3, Ólafur Jón Guðjónsson 2, Jón Sigurður Bjarnason 1, Sigurður Bjarki Jónsson 1, Steinar Már Einarsson Clausen 1, Daníel Stefán Reynisson 1, Alex Adam Gunnlaugsson 1, Tindur Ingólfsson 1.
Varin skot: Garpur Druzin Gylfason 7.
Mörk Víkings: Ísak Óli Eggertsson 9, Sigurður Páll Matthíasson 7, Kristján Helgi Tómasson 4, Kristófer Snær Þorgeirsson 3, Halldór Ingi Óskarsson 2, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 2, Stefán Scheving Th. Guðmundsson 1, Arnar Már Ásmundsson 1, Ásgeir Snær Vignisson 1, Þorfinnur Máni Björnsson 1.
Varin skot: Daði Bergmann Gunnarsson 7, Stefán Huldar Stefánsson 3, Rökkvi Pacheco Steinunnarson 1.

Grótta – Valur 2 33:30 (17:13).

Mörk Gróttu: Þorgeir Bjarki Davíðsson 6, Gísli Örn Alfreðsson 4, Gunnar Hrafn Pálsson 4, Kári Kvaran 4, Sæþór Atlason 4, Bessi Teitsson 3, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 3, Antoine Óskar Pantano 2, Atli Steinn Arnarson 2, Ari Pétur Eiríksson 1.
Varin skot: Hannes Pétur Hauksson 14.
Mörk Vals 2: Logi Finnsson 9, Matthías Ingi Magnússon 6, Bjarki Snorrason 4, Kári Steinn Guðmundsson 3, Sigurður Atli Ragnarsson 3, Dagur Ármannsson 2, Ísak Buur Þormarsson 2, Hrafn Þorbjarnarson 1.
Varin skot: Jens Sigurðarson 10, Anton Máni Francisco Heldersson 2.

ÍH – Haukar 2 29:32 (17:16).

Mörk ÍH: Brynjar Narfi Arndal 8, Róbert Dagur Davíðsson 6, Halldór Ingi Jónasson 6, Bjarki Jóhannsson 5, Þórarinn Þórarinsson 3, Hákon Ingi Garðarsson 1.
Varin skot: Kristján Rafn Oddsson 9, Jóhannes Andri Hannesson 1.
Mörk Hauka 2: Sigurður Snær Sigurjónsson 8, Egill Jónsson 5, Sigurður Bjarmi Árnason 5, Daníel Wale Adeleye 4, Daníel Máni Sigurgeirsson 3, Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson 2, Helgi Marinó Kristófersson 2, Ari Dignus Maríuson 1,Bóas Karlsson 1, Jónsteinn Helgi Þórsson 1.
Varin skot: Ari Dignus Maríuson 13.

Hörður – Selfoss 27:33 (15:20).

Mörk Harðar: Endijs Kusners 11, Kei Anegayama 4, Jose Esteves Lopes Neto 4, Shuto Takenaka 3, Guilherme Carmignoli De Andrade 2, Pétur Þór Jónsson 2, Yuji Moriya 1.
Varin skot: Hermann Alexander Hákonarson 3, Stefán Freyr Jónsson 2.
Mörk Selfoss: Aron Leo Guðmundsson 13, Ragnar Hilmarsson 6, Bjarni Valur Bjarnason 5, Dagur Rafn Gíslason 3, Bartosz Galeski 2, Skarphéðinn Steinn Sveinsson 2, Dagbjartur Máni Björnsson 1, Hilmar Bjarni Ásgeirsson 1.
Varin skot: Ísak Kristinn Jónsson 7, Garðar Freyr Bergsson 4.

HBH – Fjölnir 27:39 (14:18).

Mörk HBH: Andri Magnússon 7, Bergvin Haraldsson 6, Egill Oddgeir Stefánsson 4, Haukur Leó Magnússon 2, Nökkvi Guðmundsson 2, Kári Snær Hlynsson 1, Bogi Guðjónsson 1, Einar Bent Bjarnason 1, Tómas Runi Gunnarsson 1, Adam Smári Sigfússon 1, Heimir Halldór Sigurjónsson 1.
Varin skot: Helgi Þór Adolfsson 4, Gabríel Ari Davíðsson 2.

Mörk Fjölnis: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 10, Óli Fannar Pedersen 6, Victor Máni Matthíasson 5, Brynjar Óli Kristjánsson 4, Kristján Ingi Kjartansson 4, Eiríkur Emil Hákonarson 3, Viktor Berg Grétarsson 3, Aron Breki Oddnýjarson 2, Ari Magnússon 1, Bergur Bjartmarsson 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 4.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -