Slóvenska handboltakonan Ana Gros náði á laugardaginn glæsilegum áfanga að verða fimmta konan til þess að skora 1.000 mörk í Meistaradeild Evrópu. Skipar Gros sér þar með í hóp með nokkrum af stærstu stjörnum kvennahandboltans: Andrea Lekic, Jovanka Radicevic, Cristina Neagu og Anita Görbicz.
Gros náði áfanganum þegar lið hennar, Brest Bretagne, vann eitt fyrrverandi lið hennar, Krim Mercator, 37:25-sigur í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Sjöunda mark Gros í leiknum var hennar þúsundasta í keppninni.
Gros, sem er 35 ára, lék sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni 18 ára gömul með Krim og var það sérstök tilfinning að ná þessum áfanga í Ljubljana, þar sem ferill hennar hófst.
„Ég er himinlifandi yfir að hafa náð markinu í þessum leik. Fjölskylda mín og vinir voru viðstödd. Allt var þetta alveg fullkomið,“ segir Ana Gros í samtali við Eurohandball.


