- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grótta 2 vann 2. deild

Grótta 2, sigurlið 2. deildar karla. Ljósmynd/Grótta
- Auglýsing -


Grótta 2 vann 2. deild karla í handknattleik en síðasti leikur tímabilsins hjá liðinu fór fram í gærkvöld að Varmá. Grótta 2 vann öruggan sigur á Hvíta riddaranum, 37:23.

Bessi Teitsson og Gísli Örn Alfreðsson voru markahæstir Gróttumanna með níu mörk hvor. Engum sögum fer af því hverjir voru markahæstir hjá Hvíta riddaranum.


Tólf lið tóku þátt í 2. deild á leiktíðinni. Gekk á ýmsu á leiktíðinni og þegar úrslitin eru skoðuð á vef HSÍ liggur fyrir að margir leikir leiktíðarinnar enduðu 10:0 sem er til marks um að annað liðið hafi ekki mætt til leiks.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -