- Auglýsing -
Línumaðurinn Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hún spilaði upp alla yngri flokka Fram og með ungmennaliði félagsins. Arnbjörg hefur að undanförnu leikið með Víkingum í Grill 66-deild kvenna.
Arnbjörg er 21 árs gömul, hávaxin og sterkur varnarmaður. „Við erum ánægð með komu Arnbjargar í Gróttu. Hún mun styrkja liðið á báðum endum vallarins og auka breidd liðsins í okkar sterka leikmannahópi. Ég hlakka mikið til að byrja að vinna með henni að loknu umspilinu,“ er haft eftir Júlíusi Þóri Stefánssyni þjálfara Gróttu í tilkynningu.
- Auglýsing -


