- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðrún semur við ÍR til tveggja ára

Guðrún Maryam Rayadh handknattleikskona hjá ÍR. Mynd/ÍR
- Auglýsing -

Guðrún Maryam Rayadh hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild ÍR til 2026. Guðrún, sem fædd er árið 2001 er skytta að upplagi en getur leyst allar stöður utan af velli auk þess að vera öflugur varnarmaður. Hún var fastamaður í liði ÍR sem gerði það gott í Olísdeildinni á síðustu leiktíð sem nýliði deildarinnar.

„Ég er ánægð með að Guðrún verði áfram í Breiðholtinu enda mikilvægur hlekkur í öflugri liðsheild. Hún getur brugðið sér í mörg hlutverk og er öflug fyrir okkur á báðum endum vallarins,“ er haft eftir Sólveigu Láru Kjærnested þjálfara ÍR á Facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍR í dag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -