- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Guðrún verður með af fullum krafti frá byrjun

Guðrún Þorláksdóttir í leik með Gróttu. Ljósmynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Guðrún Þorláksdóttir hefur skrifað undir nýjan 2ja ára samning við Gróttu. Guðrún sem leikur sem línumaður átti sitt fyrsta barn á síðasta ári en kom aðeins inn í síðustu leiki leiktíðarinnar í Olísdeildinni. Guðrún hefur verið í meistaraflokki Gróttu síðustu 8 ár og þar af leiðandi ein af reynslumeiri leikmönnum liðsins. Hún á að baki 133 leiki með meistaraflokki Gróttu.


Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari meistaraflokks Gróttu segir í tilkynningu það frábærar fréttir að Guðrún ætli að taka slaginn með Gróttu í Grill 66-deildinni. Guðrún er virkilega öflugur línumaður sem hefur verið að komast betur og betur inn í hlutina eftir barnsburð.

„Handknattleiksdeildin lýsir yfir mikilli ánægju að hafa framlengt samning sinn við Guðrúnu enda eins og áður segir er hún einn að reynslumestu leikmönnum liðsins og mun halda áfram að miðla af reynslu sinni til yngri leikmanna liðsins,“ segir orðrétt í tilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -