- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Skoða þurfti upptökur áður en Gummersbach gat fagnað sigri

- Auglýsing -

Julian Köster skoraði sigurmark Gummersbach tíu sekúndum fyrir leikslok í mikilvægum sigri á Lemgo í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar á heimavelli í kvöld, 28:27. Hinsvegar mátti engu muna að gestirnir í Schwalbe Arena jöfnuðu metin á síðustu andartökum viðureigninnar. Dómararnir fóru ítarlega yfir upptöku af marki sem Lemgo skoraði í lokin áður en þeir voru vissir um að markið var skorað sekúndubrotum eftir að leiktíminn var úti.


Í hnífjöfnum leik var Gummersbach einnig marki yfir í hálfleik, 15:14. Annars mátti vart á milli liðanna sjá.

Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach og var einu sinni vikið af leikvelli, rétt undir lokin á fyrri hálfleik.

Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach. Hollendingurinn Kay Smits var markahæstur með átta mörk.

Niels Gerardus Versteijnen og Samuel Zehnder skoruðu sex mörk hvor fyrir Lemgo.

Óvænt úrslit í Porsche Arena

Meðan þetta fór fram í Schwalbe Arena vann Stuttgart mjög óvæntan sigur á THW Kiel, 32:27, í Porsche Arena í Stuttgart. Leikmenn Kiel voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14, og töpuðu algjörlega niður þræðinum í síðari hálfleik.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -