- Auglýsing -
Gunnar Kári Bragason hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss, en hann kemur á láni frá FH út komandi tímabil. Hann gekk til liðs við FH fyrir ári.
Gunnar Kári er 21 árs línumaður uppalinn á Selfossi. Þar steig hann sín fyrstu alvöru skref í meistaraflokki fyrir tveim árum. Síðasta haust gekk hann svo til liðs við FH þar sem hann varð deildarmeistari í Olísdeildinni í vor.
„Það er gleðiefni að fá þennan unga og efnilega Selfyssing í hópinn og það verður gaman að sjá Gunnar aftur á parketinu í vínrauðu treyjunni,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss í kvöld.
Karlar – helstu félagaskipti 2025
- Auglýsing -