- Auglýsing -
Gunnar Kári Bragason hefur verið kallaður aftur til FH úr láni frá Selfossi, sem hann hefur leikið með á yfirstandandi tímabili. Gunnar Kári er þegar kominn með leikheimild og getur því spilað með FH í síðustu þremur leikjum liðsins í Olísdeildinni og í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.
Gunnar Kári er 21 árs línumaður sem er alinn upp á Selfossi og hóf meistaraflokksferilinn með uppeldisfélaginu.
Hann gekk til liðs við FH sumarið 2024 og var svo lánaður aftur til Selfoss fyrir yfirstandandi tímabil. Hefur Gunnar Kári leikið vel með Selfossi á tímabilinu.
Alls skoraði Gunnar Kári 47 mörk í 19 leikjum með Selfossi í Olísdeildinni í vetur og lét sömuleiðis vel til sín taka í vörninni.
- Auglýsing -


