- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hælir Guðjóni Val á hvert reipi: „Hann er besti þjálfari í heimi“

- Auglýsing -

„Goggi er búinn að vera hér í mörg, mörg ár. Fyrir mér er hann besti þjálfari í heimi,“ sagði Christoph Schindler framkvæmdastjóri Gummersbach í myndbandi á vegum félagsins þar sem hann svaraði spurningum frá stuðningsmönnum, m.a. um framtíð þjálfarans Guðjóns Vals Sigurðssonar. „Þegar maður er með einhvern eins og hann vill maður auðvitað halda honum eins lengi og mögulegt er, segir Schindler.

Með samning til 2027

Guðjón Valur hefur þjálfað Gummersbach frá árinu 2020 er hann lagði keppnisskóna á hilluna eftir stórbrotinn feril. Í nóvember 2024 framlengdi Sigurðsson samning sinn til ársins 2027. Schindler vonast eftir annarri framlengingu.

„Mikilvægustu félagaskiptin sem ég hef gert hér voru að fá hann sem þjálfara,“ sagði íþróttastjórinn. „Þegar maður sér hversu margir leikmenn frá okkur voru á EM í janúar, ellefu talsins. Flestir hafa orðið landsliðsmenn eftir að þeir komu undir handarjaðar Guðjóns Vals.“

„Þess vegna viljum við móta framtíðina saman í langan tíma,“ lagði Schindler áherslu á. „Við sjáum til hvort hann verði ein af þessum stórbrotnu framlengingum fyrir framtíðina. Ég mun allavega gera mitt besta.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -