- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hætti hjá Lübeck-Schwartau í sumar

Örn Vésteinsson Östenberg var eitt tímabil hjá Lübeck-Schwartau. Mynd/VfL Lübeck-Schwartau
- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn Örn Vésteinsson Östenberg var leystur undan samningi hjá þýska 2. deildarliðinu VfL Lübeck-Schwartau í sumar að eigin ósk eftir eins árs dvöl hjá félaginu.

Faðir Arnar, Vésteinn Hafsteinsson, sagði við handbolta.is á dögunum að sonur sinn væri nýlega búinn að fara í aðgerð á öxl og væri nú byrjaður í endurhæfingu. Ljóst væri að einhverjir mánuðir kunni að líða þangað til Örn verður klár í slaginn á handknattleiksvellinum. Þegar að þeim tíma kæmi skýrðist hvar hann skipaðist í rúm.

Örn hefur á undanförnum árum leikið með félagsliðum í Þýskalandi, Noregi og í Svíþjóð auk Selfoss og Gróttu hér á landi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -