- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hafdís fer ekki til Svartfjallalands

- Auglýsing -

Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og landsliðsins í handknattleik, kemur ekki til móts við landsliðið í Podgorica í Svartfjallalandi eins og hugmyndir voru uppi um í gærkvöld. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari staðfesti þetta við handbolta.is í kvöld.


Hafdís fékk boltann í höfuðið síðla leiksins við Svartfellinga á Ásvöllum í gærkvöld. Hún gekkst undir skoðun í dag og var niðurstaðan sú að Hafdís færi hvergi. Hafdís hefur því miður nokkrum sinnum áður orðið fyrir höfuðhöggum í handboltaleikjum.

Strax í gærkvöld var þátttaka Katrínar Tinnu Jensdóttur í síðari leiknum afskrifuð eftir að hún fékk þung högg á gagnauga við varnarleik gegn stórskyttunni Djurdjina Jaukovic.

Katrín Tinna Jensdóttir gengur þjökuð af velli. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Þar með er ljóst að Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram, sem kölluð var inn í hópinn skömmu fyrir brottför frá Keflavík rétt eftir miðnætti, leikur sinn fyrsta landsleik á sunnudaginn. Hún mun verja markið ásamt Söru Sif Helgadóttur, reyndum markverði Hauka.

Til Podgorica rétt eftir hádegið

Landsliðshópurinn, þjálfarar og starfsfólk kom til Podgorica rétt eftir hádegið í dag eftir flug frá Keflavík til Varsjár í nótt og síðan þaðan eftir nokkurra klukkustunda stans til Pogdorica.

Sara Sif Helgadóttir, markvörður, Andrea Jacobsen, Dana Björg Guðmundsdóttir og Elín Klara Þorkelsdóttir ásamt Svartfellingnum Ibina Grbic sem virðist hnípin. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Kemur annað kvöld

Díana Dögg Magnúsdóttir kemur til Podgorica annað kvöld eftir að hafa þreytt próf í fyrramálið í Þýskalandi. Prófið er hluti af meistaranámi hennar í flugvélaverkfræði.

Aðstæður eru góðar

„Hér er allt eins og það á að vera. Aðstæður eru góðar, hótelið fínt og matur í lagi. Sól og 18 gráður í dag þegar við komum,“ sagði Arnar við handbolta.is í kvöld.

Æfing fyrir hádegið

„Eftir að við komum var dagurinn nýttur í endurheimt sem Hjörtur, Tinna og Jóhanna báru hitann og þungann af. Við eigum æfingu klukkan hálf ellefu í fyrramálið og munum síðan nýta tímann til að funda,“ sagði Arnar. Íslenska liðið á aðra æfingu á laugardaginn. Síðari leikurinn við Svartfellinga hefst klukkan 17 á sunnudaginn í Bemax Arena í Potgorica.


Íslenski keppnishópurinn í Podgorica.

Markverðir:
Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (0/0).
Sara Sif Helgadóttir, Haukum (22/0).
Aðrir leikmenn:
Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukum, (6/3).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe, (67/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda, (20/47).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (72/97).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof, (34/131).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe, (39/80).
Elísa Elíasdóttir, Val, (30/27).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram, (21/28).
Lovísa Thompson, Val, (38/72).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR, (8/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum, (11/6).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV, (46/192).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR, (4/12).
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukum, (4/1).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -