- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Hafðu engar áhyggjur af því“

- Auglýsing -

Sveinn Brynjar Agnarsson, fyrirliði ÍR, var svekktur en stoltur af sínum mönnum eftir að liðið tapaði 28:21 fyrir Haukum í úrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Grétar Ari Guðjónsson fór hamförum í marki Hauka, sem Sveini Brynjari fannst skilja á milli.

„Þetta er bara ógeðslega súrt. Við ætluðum að gera miklu meira heldur en þetta en Haukarnir voru flottir og Grétar náttúrlega frábær í markinu. Það er ekkert mikið meira hægt að gera þegar hann er svona,“ sagði fyrirliðinn í samtali við handbolta.is eftir leikinn.

Haukar bikarmeistarar 2026 – Grétar Ari fór á kostum

ÍR náði sér erfiðlega á strik í leiknum þar sem vörn Hauka og Grétar Ari reyndust Breiðhyltingum erfiðir.

Kannski einhver smá skrekkur

„Hann er náttúrlega búinn að vera atvinnumarkmaður í ég veit ekki hvað mörg ár, er kominn í deildina og er bara ferskur. Svo eru mínir strákar mjög ungir og þetta er í fyrsta skipti sem þeir eru að spila á svona stóru svið. Kannski var einhver smá skrekkur í þeim en það er bara áfram gakk,“ sagði Sveinn Brynjar.

Lið ÍR er eins og hann benti á mjög ungt og kvaðst Sveinn Brynjar afskaplega stoltur af sínum mönnum.

„Já, hundrað prósent. Þessir strákar eru geggjaðir og við munum vera hérna aftur. Hafðu engar áhyggjur af því.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -