- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hafnarfjarðarslagur í undanúrslitum bikarsins

- Auglýsing -

Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar mætast í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ fimmtudaginn 26. febrúar í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Sú varð niðurstaðan þegar dregið var til undanúrslita í hádeginu í dag. Síðari viðureign undanúrslita verður á milli ÍR og KA.


Fyrri viðureignin, Hafnarfjarðarslagurinn, hefst klukkan 18 en leikur ÍR og KA klukkan 20.15. Ákveðið var að lið sem kemur utan af landi fengi síðari viðureign undanúrslita, jafnt í karla- sem kvennaflokki.

Úrslitaleikurinn í karlaflokki verður laugardaginn 28. febrúar, einnig í Kuehne+Nagel höllinni, og hefst klukkan 18.30 sem er mun seinna á deginum en verið hefur undanfarin ár.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -