Nathalie Hagman, hægri hornamaður sænska landsliðsins, kom sér í afar fámennan hóp í gærkvöldi þegar hún skoraði sjö mörk í 29:26 sigri Svíþjóðar á Serbíu þar í landi. Rauf Hagman þá þúsund marka múrinn með sænska landsliðinu.
Hún er aðeins þriðji leikmaðurinn sem tekst að skora þúsund mörk eða fleiri fyrir sænska kvennalandsliðið en áður höfðu þær Mia Hermansson-Högdahl og Åsa Mogensen afrekað það.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
Hermansson-Högdahl skoraði 1.153 mörk og Mogensen skoraði 1.108 mörk. Hagman, sem er 34 ára gömul, hefur nú skorað 1.001 mark fyrir Svíþjóð.
Svíþjóð er langt komin með að tryggja sér sæti á EM 2026 síðar á árinu enda með fullt hús stiga, sex talsins, í toppsæti 5. riðils undankeppninnar.


