- Auglýsing -
- Auglýsing -

Halldór Stefán stýrir ekki KA-liðinu gegn HK

Halldór Stefán Haraldsson þjálfari KA verður fjarverandi á morgun þegar liðið tekur á móti HK. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Halldór Stefán Haraldsson stýrir ekki KA-liðinu annað kvöld þegar það tekur á móti HK í Olísdeild karla í KA-heimilinu. Á heimasíðu KA er greint frá því að Halldór Stefán sé í leyfi. Hann var svo óheppinn að fá sýkingu í annað hnéð í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir fyrir nokkrum vikum.

Halldór Stefán mætir galvaskur til leiks á ný um leið og hann verður kominn á ról.

Andri Snær Stefánsson aðstoðarþjálfari hleypur í skarðið fyrir Halldór Stefán í leiknum við HK og fær hinn þrautreynda þjálfara og leikmann Sverre Andreas Jakobsson sér til fulltingis.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

Olísdeild karla – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -