- Auglýsing -
Ægir, íþróttafélag fatlaðra í Vestmannaeyjum, hefur hafið skipulagðar æfingar í handknattleik. Fyrsta æfingin var á mánudaginn. Viðtökur voru afar góðar og skein eftirvænting og einbeiting úr hverju andliti.
Æfingarnar verða næstu vikur og mánuði í Týsheimilinu á mánudögum á milli 17.30 og 18.30. Þjálfari er Bergvin Haraldsson sem er einnig þjálfari hjá ÍBV
Mikill metnaður er í starfi Ægis og er handboltinn frábær viðbót við starfið.
Fleiri myndir frá fyrstu æfingunni er að finna á Facebook-síðu Ægis.
- Auglýsing -