Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar karla valið. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, vinstri skytta KA, var þar útnefndur besti leikmaður tímabilsins 2025/2026.
Bjarni Ófeigur átti magnað tímabil í deildinni og var einfaldlega óstöðvandi í sóknarleik KA-manna þar sem hann skoraði 147 mörk og gaf 122 stoðsendingar í 19 leikjum.
Þáttastjórnandinn Hörður Magnússon fór yfir verðlaunahafa tímabilsins með sérfræðingunum Einari Inga Hrafnssyni og Rakel Dögg Bragadóttur. Sigursteinn Arndal hjá FH var til að mynda valinn besti þjálfarinn og lið ÍR olli mestum vonbrigðum.
Besti leikmaður: Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA.
Besti varnarmaður: Ingvar Dagur Gunnarsson, FH.
Besti nýliðinn: Ómar Darri Sigurgeirsson, FH.
Besti þjálfarinn: Sigursteinn Arndal, FH.
Mestu vonbrigðin: ÍR.
Úrvalslið Olísdeildar karla 2025/2026:
Markvörður: Björgvin Páll Gústavsson, Val.
Vinstri hornamaður: Hannes Höskuldsson, Selfossi.
Vinstri skytta: Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA.
Leikstjórnandi: Freyr Aronsson, Haukum.
Hægri skytta: Arnór Snær Óskarsson, Val.
Hægri hornamaður: Giorgi Dikhjaminjia, KA.
Línumaður: Sigurður Jefferson Guarino, HK.
Umræðu um úrvalslið Olísdeildar karla og aðra verðlaunahafa má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026.



