- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Ekki einu sinni komin með bílpróf

- Auglýsing -

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var fjallað um stórsigur Fram á KA/Þór í lokaumferð Olísdeildar kvenna á sunnudag. Arna Sif Jónsdóttir, 16 ára gamall markvörður Fram, átti frábæra innkomu í leiknum.

„Hún kemur bara í markið og lokar. Hún er með 40% markvörslu en samt er hún örugglega að fá nokkur mörk á sig þar sem hún er að hlaupa inn á úr sjö á sex. Þannig að hún stendur ekki í markinu þegar markið kemur,“ sagði sérfræðingurinn Einar Ingi Hrafnsson um frammistöðu Örnu Sifjar.


Þrátt fyrir ungan aldur er hún markvörður númer tvö hjá Fram á eftir Ethel Gyðu Bjarnasen og hefur spilað töluvert á tímabilinu. „Hún á stóran þátt í þessum stóra sigri Fram, kom inn í seinni hálfleik að loka,“ bætti Einar Ingi við.

„Það er ótrúlegt hvað hún er komin langt verandi þetta ung. Hún er fædd 2009, hún er ekki einu sinni komin með bílpróf ennþá en er komin langt. Hún er búin að taka nokkrar svona syrpur í vetur,“ sagði sérfræðingurinn Rakel Dögg Bragadóttir.

Umræðu um frammistöðu Örnu Sifja, Huldu Dagsdóttur og frábæran varnarleik Fram má sjá í heild sinni í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -