- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Erfitt að vera í A-landsliðinu í Grill deildinni

- Auglýsing -

Selfoss féll um helgina úr Olísdeild kvenna og niður í Grill 66 deildina eftir að hafa tapað stórt fyrir ÍR í Skógarseli í lokaumferðinni. Stjarnan gerði á sama tíma jafntefli við Hauka og komst þar með upp úr botnsætinu. Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var farið ítarlega yfir leik ÍR og Selfoss.

„Selfyssingar koma inn í þennan leik í sjöunda sætinu. Ég get alveg skilið það að þær bjuggust ekki alveg við því að Haukarnir myndu misstíga sig, að Stjarnan myndi ná í þetta dýrmæta stig. Þannig að það var kannski einhver værukærð eða eitthvað svoleiðis. En þær voru bara ekki tilbúnar í slaginn,“ sagði sérfræðingurinn Einar Ingi Hrafnsson.


Vinstri hornamaðurinn Perla Ruth Albertsdóttir skoraði sitt fyrsta og eina mark fyrir Selfoss á tímabilinu í leiknum en hún er nýsnúin aftur á völlinn eftir barneignaleyfi. Perla Ruth hefur á undanförnum árum verið fyrsti kostur í sinni stöðu í A-landsliðinu.

Hvað mun hún gera?

„Hún er búin að vera á skýrslu í tveimur leikjum og ætlaði að reyna að leggja sitt á vogarskálarnar til þess að halda Selfossi uppi. Umræðupunkturinn er svolítið hvað mun hún gera? Ég held að þetta sé rosa högg fyrir hana persónulega, eins og Selfoss, að liðið fari niður.


Það er búið að leggja ágætlega í þetta lið. Hópurinn er alveg ágætlega sterkur. Ég held að það sé einhvern erfitt að vera í A-landsliði kvenna og spila í Grill deildinni,“ sagði Einar Ingi um stöðuna sem Perla Ruth er nú í.

Umræðuna um leikinn og Perlu Ruth má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -