- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Fyrsta sóknin ætlaði engan enda að taka

- Auglýsing -

Í uppgjöri Handboltahallarinnar á Handboltapassanum á 15. umferð Olísdeildar kvenna á mánudagskvöld var stórsigur Vals á Selfossi tekinn fyrir. Fyrsta sókn leiksins virtist engan endi ætla að taka þar sem Hafdís Renötudóttir í marki Vals varði trekk í trekk.

„Í þessum leik byrja Selfyssingarnir á einhverri tveggja mínútna sókn þar sem Hafdís hendir í held ég þrjár vörslur. Hún ver boltann í innkast í annað skiptið, bæði úr algjörum dauðafærum,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson, sérfræðingur Handboltahallarinnar.

„Svo fær Selfoss víti en hún ver samt skotið. Það er ein mínúta og 37 sekúndur þarna þegar vítakast Selfyssinga kemur og hún ver það auðvitað, í innkast. Sóknin hélt áfram. Sem betur fer náðu þær að skora,“ bætti Einar Ingi við.

Þá voru rétt tæpar tvær mínútur liðnar af leiknum og fyrstu sókn leiksins lauk með marki frá Selfoss.

„Ég hef aldrei séð þetta áður, tveggja mínútna sókn,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar.

Yfirlit og umræðu um tveggja mínútna fyrstu sókn leiksins má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -