- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Gátu alltaf leitað til Gunnars

- Auglýsing -

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var rætt um glæsilega frammistöðu Gunnars Róbertssonar í öruggum sigri Vals á KA, 36:31, í 18. umferð Olísdeildarinnar á laugardag.

„Mér fannst þeir eiginlega alltaf getað leitað til Gunnars í leiknum. Hann átti einhvern veginn alltaf eina hreyfingu. Það er ein sending eftir, látum bara heitasta manninn skjóta. Það er oft þannig þó hann sé ekkert endilega stærsta og mesta skyttan.


Hann er fremstur í hraðaupphlaupum. Það var magnað að fylgjast með honum. Hann er með tíu mörk úr 15 skotum samt en líka þrjár stoðsendingar og er að spila varnarleik. Það er gaman að fylgjast með ungum mönnum springa út,“ sagði Vignir Stefánsson, sérfræðingur hjá Handboltahöllinni.

„Hann er nefnilega góður alhliða, hann er góður í vörninni líka, í bakkaranum. Það er erfitt að drippla og senda í kringum hann. Hann er óþægilegur þar fyrir sóknina,“ bætti sérfræðingurinn Ásbjörn Friðriksson við.


Fleiri leikmönnum Vals var hrósað, þá sér í lagi þeim Arnóri Snæ Óskarssyni og Degi Leó Fannarssyni, og má sjá umræðuna um Valsmenn í heild í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -