„Einar Baldvin, hann átti tilþrif. Hann hefur ekki fundið sig en hann fann sig þarna,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon í Handboltahöllinni á Handboltapassanum í gærkvöldi.
Vísaði Hörður til þess þegar Einar Baldvin Baldvinsson markvörður Aftureldingar varði frá Hákoni Daða Styrmissyni vinstri hornamanni ÍBV í leik liðanna í 18. umferð Olísdeildarinnar í Vestmannaeyjum fyrir helgi. ÍBV vann leikinn 32:29.
Gerði Einar Baldvin sér lítið fyrir og greip boltann þrátt fyrir að Hákon Daði væri mjög nálægt honum og skaut af töluverðu afli.
„Það er ekki gott að láta grípa frá sér úr horninu frekar en úr víti. Eigum við ekki segja að þetta sé bara lesið?“ spurði Vignir Stefánsson sérfræðingur Handboltahallarinnar.
Einar Baldvin, sem var hluti af æfingahópi Íslands fyrir Evrópumótið eftir frábæra frammistöðu í Olísdeildinni fyrir áramót, hefur ekki spilað jafn vel eftir áramót.
„Hann kom vörninni oft í gang fyrir áramót með því að byrja að verja dauðafæri. Þá kom barátta og trú í vörnina í framhaldinu. Maður saknar þess svolítið. Hann þurfti ekki alltaf góða vörn til þess að verja fyrir áramót,“ sagði Ásbjörn Friðriksson, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar.
Myndskeið af markvörslu Einars Baldvins og umræðu um frammistöðu hans má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.


