Það var heitt í kolunum þegar grannliðin KA og Þór mættust í Olísdeild karla í handknattleik síðasta fimmtudag. Ekkert er óeðlilegt við það enda hefur lengi verið rígur á milli Akureyrarliðanna sem voru að mætast í fyrsta sinn í Olísdeild karla í rúm fjögur ár. Leikurinn var til umfjöllunar í Handboltahöllinni í gær.
Vignir Stefánsson og Rakel Dögg Bragadóttir sérfræðingar Handboltahallarinnar hrósuðu dómurum leiksins, Bjarka Bóassyni og Gunnari Óla Gústafssyni fyrir yfirvegun og góða frammistöðu. „Það hefði verið svo auðvelt að missa leikinn í vitleysu,“ sagði Vignir.
Farið var yfir nokkur atriði leiksins í myndskeiðinu hér fyrir ofan.
Handboltahöllin er vikulegur þáttur í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans hvert mánudagskvöld í umsjón Harðar Magnússonar. Í þættinum er farið yfir leiki síðustu umferða í Olísdeildum karla og kvenna.


