Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var rætt um einkar erfiða stöðu botnliðs Selfoss í Olísdeild kvenna eftir að liðið tapaði 22:26 á heimavelli fyrir KA/Þór í 17. umferð deildarinnar á laugardag.
Selfoss er í áttunda sæti og getur ekki komist ofar en í sjöunda sæti þegar fjórar umferðir eru óleiknar. Stjarnan er í sjöunda sæti, umspilssæti, með einu stigi meira.
„KA/Þór er með töluvert sterkara lið finnst manni og betur drillað. Ef þú vinnur ekki leik á móti liðinu sem er í sjötta sæti, KA/Þór er með 17 tapaða bolta, ef þú nærð ekki að nýta þér það á heimavelli þegar það er allt undir hvernig ætlarðu þá að bjarga þér?“ velti Ásbjörn Friðriksson sérfræðingur Handboltahallarinnar fyrir sér.
Bernadett Leiner átti stórleik í marki KA/Þórs og varði 18 skot, sem Ásbirni fannst að mörgu leyti mega rekja til skorts á sjálfstrausti hjá leikmönnum Selfoss. Mia Kristin Syverud heltist þá nýverið úr lestinni vegna meiðsla og er það sannarlega skarð fyrir skildi hjá Selfyssingum.
„Takturinn í sóknarleik Selfoss er mjög höktandi eftir að hafa misst hana út,“ sagði Vignir Stefánsson sérfræðingur Handboltahallarinnar.
Umræðuna um leikinn má sjá í heild sinni í myndskeiðinu hér að ofan.




