- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Man ekki eftir Stefáni svona snöggum

- Auglýsing -

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var farið yfir hreint lygilega dramatík undir lok leiks Hauka og Stjörnunnar í lokaumferð Olísdeildar kvenna á laugardag. Leiknum lauk með jafntefli, 26:26 eftir að Stjarnan hafði jafnað metin fjórum sekúndum fyrir leikslok.

Ótímabært leikhlé Stefáns Arnarsonar þjálfara Hauka kom í veg fyrir að liðið skoraði sigurmark og sá um leið til þess að Stjarnan náði í stig og slapp þannig við fall niður í Grill 66 deildina. Það varð hlutskipti Selfoss en Stjarnan fer í umspil ásamt Gróttu, Víkingi Reykjavík og FH úr Grill 66 deildinni.


„En eigum við að sjá sprettinn aftur hjá Stebba? Ég verð að sjá þennan sprett aftur. Ég spilaði með honum í gamla daga í fótboltanum og ég man ekki eftir honum svona snöggum. Sjáið þið karlinn?“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon í léttum dúr um leikhléið afdrifaríka.

Sjáum Alfreð Gísla gera það sama í janúar

„Við vorum að tala um smáatriði og lítil mistök áðan. Þarna féll þetta með Stjörnunni og þegar allt kemur til alls telur þetta gríðarlega mikið. Það sést þarna að það eina sem Stefán er að hugsa að hann ætlar bara að reyna að ná sem mestum tíma til að skora.

Hann metur það sem svo að þær eru ekki að ná að koma boltanum í tómt markið. Við sjáum Alfreð Gísla gera það sama í janúar,“ sagði sérfræðingurinn Rakel Dögg Bragadóttir.

Ítarlega umræðu um leikinn má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -