- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Þetta er Robbi Gunn „special“

- Auglýsing -

Það var um margt að fjalla í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld þar sem gera þurfti upp þrjár heilar umferðir í Olísdeildum karla og kvenna. Farið var yfir 16. og 17. umferð í Olísdeild karla og 16. umferð í Olísdeild kvenna.

Glæsilegt mark Ómars Darra Sigurgeirssonar, leikmanns FH, í sigri á HK í 16. umferð var skoðað vandlega og hrósuðu Ásbjörn Friðriksson og Vignir Stefánsson, sérfræðingar Handboltahallarinnar, Ómari Darra fyrir tilþrifin.

„Yfirhandar finta og snúningur,“ sagði Ásbjörn.

„Hann setur saman tvær bestu fintur í heimi og skorar líka. Þetta er Robbi Gunn „special,“ hann skoraði nokkur svona,“ sagði Vignir um markið.

Sjón er sögu ríkari og má sjá markið og umræðu um það í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -