Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var sterkur sigur FH gegn Þór á Akureyri í 17. umferð Olísdeildar karla gerður upp. Eftir jafnan leik framan var sem FH væri í betra líkamlegu ásigkomulagi síðustu mínúturnar og vann að lokum öruggan 26:21 sigur.
„Þegar þú horfir á þessi tvö lið þá held ég að þetta sé að hluta til að FH-ingarnir líta út fyrir að vera í töluvert betra formi,“ sagði Ásbjörn Friðriksson, einn af sérfræðingum Handboltahallarinnar.
Nokkur afar lagleg mörk litu dagsins ljós í leiknum þar sem sannkallaður þrumufleygur Ómars Darra Sigurgeirssonar hjá FH var til að mynda tekinn fyrir og einkar snyrtileg vippa Halldórs Kristins Harðarsonar hjá Þór var skoðuð.
„Þeir eru mikið að vippa fyrir norðan. Það er lognið,“ sagði Vignir Stefánsson, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar.
„Það er einhver vipp kúltúr þarna hjá norðanmönnum,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon.
Umræðuna um leik Þórs og FH má sjá í heild sinni í myndskeiðinu hér að ofan.



