- Auglýsing -
Handboltinn okkar var í beinni útsendingu í gækvöld þar sem Patrekur Jóhannesson þjálfari karlaliðs Stjörnunnar og Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari karlaliðs Vals voru í spjalli. Þá var slegið á þráðinn til Róberts Geirs Gíslasonar framkvæmdastjóra HSÍ og heyrt hvaða sviðsmyndir eru í boði varðandi mótahald í handboltanum.
Síðan völdum við besta og versta lið áratugarins ásamt því að þeir Atli og Andri völdu sitt hvort liðið sem er skipað útlendingum sem hafa spilað á Íslandi. Þá setti Atli Rúnar saman 14 manna leikmanna hóp með þeim bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með.
Lifandi og skemmtilegur þátt sem má nálgast hér fyrir neðan og eins á streymisveitum.
- Auglýsing -