- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hanna Guðrún kveður Stjörnuna og sækir í ræturnar hjá Fram

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Fram hefur samið við Hönnu Guðrúnu Hauksdóttur um að leika með liðinu á komandi tímabili. Hanna Guðrún, sem er fædd árið 2005, kemur til félagsins frá Stjörnunni.

Hanna er efnilegur leikmaður sem spilar í stöðu vinstri skyttu og er jafnframt mjög öflugur varnarmaður.


„Hanna á sterkar rætur í Fram, en langafi hennar, Hilmar Guðlaugsson, var formaður félagsins á árunum 1978–1986. Afi hennar, Bjarni P. Magnússon, var einnig formaður körfuknattleiksdeildar Fram um árabil. Þá er ömmubróðir hennar Atli Hilmarsson, fyrrum leikmaður og þjálfari Fram. Móðursystir Hönnu, Jóna Hildur Bjarnadóttir, var formaður Almenningsíþróttadeildar um árabil og heitir litli speglasalurinn okkar í höfuðið á henni, Jónusalur,“ segir í tilkynningu Fram.

Hanna Guðrún skoraði 25 mörk í 21 leik með Stjörnunni í Olísdeild kvenna í vetur.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -