- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hannes fyrirliði slær ekki af

Hannes Höskuldsson fyrirliði handknattleiksliðs Selfoss. Ljósmynd/UMF Selfoss
- Auglýsing -

Hannes Höskuldsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.

Hannes, sem er fyrirliði Selfossliðsins, er 25 ára vinstri hornamaður sem alinn er upp á parketinu á Selfossi. Hannes var fastamaður í Íslandsmeistaraliði Selfoss vorið 2019 og hefur leikið með meistaraflokki allar götur síðan. Hannes slær hvergi af í vetur.

„Það er frábært fyrir okkur og frábært fyrir meistaraflokk að hafa leiðtoga eins og Hannes með sér í liði,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss.

Selfoss vann Hauka2 í fyrstu umferð Grill 66-deildar á síðasta föstudag. Í annarri umferð sækir Selfossliðið heim Harðarmenn til Ísafjarðar á morgun.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Grill 66-deild karla – fréttir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -