- Auglýsing -
Íslendingaliðið Alpla Hard tapaði fyrsta úrslitaleiknum við Krems um austurríska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld, 32:30. Leikið var á heimavelli Hard í Bregenz. Næst mætast liðin á heimavelli Krems eftir rétt viku og verður Alpla Hard að vinna þá viðureign til þess að knýja fram oddaleik. Annars verða leikmenn liðsins að sætta sig við silfurverðlaun annað árið í röð.
Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fimm mörk fyrir Alpla Hard og gaf eina stoðsendingu. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard.
Leikmenn Krems voru sterkari í leiknum frá upphafi til enda. Þeir voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17:13. Mestur var munurinn í sex mörk í síðari hálfleik, 24:18.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -