Hans Óttar Lindberg Tómasson, Daninn með íslensku foreldrana sem lék með danska landsliðinu í 22 ár, var heiðraður fyrir magnaðan landsliðsferil sinn eftir sigur Danmerkur á Bandaríkjunum í alþjóðlega mótinu Golden League í Kaupmannahöfn á laugardag.
Hans Óttar, sem er 44 ára gamall, lék 308 A-landsleiki fyrir Danmörku frá 2003 til 2024 og er enn að spila sem atvinnumaður. Það gerir hann með HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni.
Eftir sigur Danmerkur í Royal Arena í Kaupmannahöfn gekk Hans Óttar inn á völlinn með tveimur sonum sínum, þar sem þeir feðgar horfðu saman á myndskeið af hans helstu afrekum á stórum skjá í keppnishöllinni, sem hafði verið sett saman fyrir hægri hornamanninn.
„Það er mikilvægt að við höldum áfram að heiðra og færa þessum leikmönnum þakkir fyrir það sem þeir áorkuðu,“ sagði landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen í samtali við BT, en Hans Óttar varð til að mynda Evrópu-, ólympíu- og heimsmeistari með danska liðinu.



