Haukar unnu öruggan sigur á Aftureldingu, 34:26, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla um Íslandsmeistaratitilinn í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Haukar eru því komnir í 1:0 í einvíginu.
Liðin mætast næst í Myntkaup höllinni að Varmá í Mosfellsbæ á mánudagskvöld kl. 19.30. Þar geta Haukar sent Aftureldingu í sumarfrí með sigri. Að öðrum kosti jafnar Afturelding metin og knýr fram oddaleik í Kuehne+Nagel höllinni á skírdag.
Haukar tóku stjórnina strax í upphafi leiks og náðu mest níu marka forystu, 20:11, undir lok fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik var 20:12.
Síðari hálfleikur reyndist nokkurs konar formsatriði fyrir Hauka, sem héldu góðri stjórn og hleyptu Aftureldingu ekki nær sér en sex mörkum í stöðunni 26:20. Haukar unnu að lokum átta marka sigur.
Haukar – Afturelding 34:26 (20:12).
Mörk Hauka: Freyr Aronsson 9/2, Skarphéðinn Ívar Einarsson 5/1, Jón Ómar Gíslason 5, Ólafur Ægir Ólafsson 3, Össur Haraldsson 3, Sigurður Snær Sigurjónsson 3, Hergeir Grímsson 2, Andri Fannar Elísson 2, Þráinn Orri Jónsson 2.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 7/1, Aron Rafn Eðvarðsson 5/1.
Mörk Aftureldingar: Ihor Kopyshynskyi 5/1, Harri Halldórsson 5, Oscar Lykke 4, Árni Bragi Eyjólfsson 4/2, Ævar Smári Gunnarsson 2, Ágúst Ingi Óskarsson 2, Kristján Ottó Hjálmsson 2, Brynjar Búi Davíðsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 4/1.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



