- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukar jöfnuðu metin – Aron Rafn fór á kostum

- Auglýsing -

Haukar jöfnuðu metin í undanúrslitaeinvíginu við FH í Olísdeild karla í handknattleik með sannfærandi fimm marka sigri, 27:22, í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Liðin hafa þar einn vinning hvort og mætast í þriðja sinn í Kaplakrika á þriðjudagskvöld kl. 19.30. Vinna þarf þrisvar í undanúrslitum.


Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka fór á kostum í markinu í kvöld. Óhætt er að segja að hlutverkaskipti hafi orðið á frá fyrsta leiknum þegar Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörður FH reið baggamuninn. Nú var það hinn reynslumikli Aron Rafn sem sá sem mestu máli skipti. Hann varði 19 skot og var 47,5% hlutfallsmarkvarsla. Þar af varði Aron Rafn fjögur vítaköst, þrjú þeirra í síðari hálfleik, öll frá Garðari Inga Sindrasyni.

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka reyndist FH-ingum óþægur ljár í þúfu. Hér freistar Símon Michael Guðjónsson að skora hjá markverðinum reynda. Ljósmynd/J.L.Long

Haukar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. Þeir hófu síðari hálfleikinn afar vel og náðu fjögurra marka forskoti, 18:14. FH náði að minnka muninn í eitt mark áður Haukar tóku afgerandi forystu á ný. FH-ingar eltu allan síðari hálfleikinn. Eftir að tvö tækifæri til þess að minnka muninn í tvö mörk í stöðunni, 24:21, gengu FH-ingum úr greipum virtist vonin úti og Haukar juku forskotið á allra síðustu mínútunum líkt og FH-ingar gerðu í Kaplakrika síðasta þriðjudag.

Auk Arons Rafns átti hinn 17 ára gamli Freyr Aronsson frábæran leik eins og oft áður en víst er að piltur var af lurkum laminn eftir viðureignina. Í heildina þá var meiri ró yfir sóknarleik Hauka í kvöld en í fyrsta leiknum auk þess sem fleiri leikmenn tóku af skarið.

FH-ingar léku góða vörn en markvarslan var ekki sem skildi. Nýtingu færa í sókninni var ábótavant enda var Aron Rafn stórkostlegur í marki Hauka og var nánast með suma leikmenn FH í vasanum.


Mörk Hauka: Freyr Aronsson 7/3, Össur Haraldsson 7, Hergeir Grímsson 3, Birkir Snær Steinsson 3, Ólafur Ægir Ólafsson 3, Þráinn Orri Jónsson 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 19/4, 47,5% – Grétar Ari Guðjónsson 1, 50%.

Mörk FH: Garðar Ingi Sindrason 6/1, Jón Bjarni Ólafsson 3, Leonharð Þorgeir Harðarson 3, Kristófer Máni Jónasson 2, Ómar Darri Sigurgeirsson 2, Birgir Már Birgisson 1, Daníel Freyr Andrésson 1, Einar Örn Sindrason 1/1, Gunnar Kári Bragason 1, Jakob Martin Ásgeirsson 1, Símon Michael Guðjónsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 6, 28,6% – Daníel Freyr Andrésson 1, 7,7%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -