- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur í sigurliði – Rúnar tapaði – Melsungen vann

- Auglýsing -

Haukur Þrastarson skoraði sjö mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen þegar liðið lagði GWD Minden, 34:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Leikurinn fór fram í Minden. Eitt markanna skoraði Haukur úr vítakasti. Auk þess átti hann tvær stoðsendingar. Jannik Kohlbacher var markahæstur leikmanna Rhein-Neckar Löwen með 10 mörk.

Rúnar tapaði

Rúnar Sigtryggsson þjálfari Wetzlar varð að bíta í það súra epli að tapa í heimsókn með lið sitt til Hannover-Burgdorf í kvöld, 30:25. Heiðmar Felixson er sem fyrr aðstoðarþjálfari Hannover-Burgorf.

Renars Uscins fór á kostum með Hannover-Burgdorf og skoraði 10 mörk. August Pedersen skoraði sex mörk.

Andreas Palicka tók þátt í sínum fyrsta leik með Wetzlar. Hann stóð í marki liðsins allan leikinn og varði 11 skot, 27%. Tristan Kirschner var markahæstur hjá Wetzlar með sex mörk.

Melsungen hafði betur

Hvorki Arnar Freyr Arnarsson né Reynir Þór Stefánsson skoruðu þegar lið þeirra Melsungen vann Göppingen, 31:23, í þýsku 1. deildinni í kvöld.

Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyrir Göppingen. Hornamaðurinn Marcel Schiller var markahæstur með níu mörk. Nikolaj Enderleit var atkvæðamestur hjá Melsungen með átta mörk.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -