- Auglýsing -
Haukur Þrastarson og liðsfélagar í Dinmao Búkarest leika á morgun til úrslita í rúmensku bikarkeppninni í handknattleik. Dinamo vann Minaur Baia mare, 34:23, í undanúrslitum í dag. Haukur skoraði ekki mark í leiknum.
Dinamo leikur við Potaissa Turda í úrslitaleiknum á morgun. Turda-liðið lagði CSM Búkarest, 26:22, í hinni viðureign undanúrslitanna eftir hádegið í dag.
Dinamo er efst í rúmensku úrvalsdeildinni en Potaissa Turda situr í þriðja sæti.
Branko Vujovic skoraði níu mörk fyrir Dinamo í undanúrslitaleiknum í dag. Ali Zein var næstur með fimm mörk.
- Auglýsing -