- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

HDSÍ heiðrar þrjá félaga

Heiðursmerkjahafar HDSÍ, fv. Guðjón L. Sigurðsson, Ólafur Örn Haraldsson og Gísli H. Jóhannsson. Ljósmynd/HDSÍ
- Auglýsing -


Handknattleikssdómarasamband Íslands, HDSÍ, ákvað á aðalfundi félagsins nýverið að heiðra þrjá dómara fyrir störf sín í þágu handknattleiksdómgæslu á Íslandi. Þeir eru Gísli Hlynur Jóhannsson, Ólafur Haraldsson og Guðjón L. Sigurðsson. Voru þeir sæmdir heiðursmerki HDSÍ, en þá viðurkenningu hefur aðeins Kjartan Steinback fyrrverandi formaður dómaranefndar IHF hlotið á undan þeim.

Gísli Hlynur Jóhannsson

Gísli hefur starfað sem dómari hjá HSÍ síðan árið 1982. Var hann að ásamt félaga sínum Hafsteini Ingibergssyni allt til ársins 2016 eða 34 ár. Á þessum árum dæmdi Gísli um 1.700 handknattleiksleiki á vegum HSÍ í öllum flokkum þó að mestu í efstu deildum karla og kvenna. Á ferlinum dæmdi hann sex bikarúrslitaleiki.

Einnig hefur Gísli fengið að njóta þess heiðurs að dæma á fjórum Special Olympics í fjórum löndum, og er hreyfing okkar gríðarlega stolt af því framtaki hans.

Gísli Hlynur hefur starfað mikið á bakvið tjöldin í starfi dómara á Íslandi og hefur setið m.a. í dómaranefnd HSÍ og verið formaður HDSÍ. Auk þessa hefur sinnt fræðslumálum á suðurnesjum um dómaramál.

Ólafur Haraldsson

Ólafur Haraldsson hefur starfað sem dómari hjá HSÍ síðan árið 1976. Dæmdi hann í framhaldinu með Stefáni Arnaldssyni til ársins 1989 og tóku þeir félagar IHF próf sitt í janúar 1989. Haustið það ár fór Ólafur til Noregs og dæmdi hann þar til ársins 1995.

Ár árum sínum í Noregi dæmdi Ólafur nokkra leiki ásamt Óla Ólsen og Gunnari Kjartanssyni í EHF keppnum. Við heimkomu árið 1995 hóf Ólafur að dæma með Gunnar Kjartanssyni en tók svo að dæma með Guðjóni L Sigurðssyni frá árinu 1998. Guðjón og Ólafur dæmdu svo saman til ársins 2005 þegar Ólafur lagði flautuna á hilluna.

Frá árinu 2007 hefur Ólafur sinnt eftirliti á leikjum á vegum HSÍ og frá vorinu 2008 einnig á vegum EHF.

Ólafur hefur setið í dómaranefnd HSÍ og nú síðasta árið gegndi hann formennsku í þeirri nefnd.


Guðjón L. Sigurðsson

Guðjón hefur starfað sem dómari frá árinu 1972. Fyrstu ár sín í dómgæslu dæmdi hann með Jóni Hermannssyni en dæmdi síðar með Aðalsteini Örnölfssyni.

Á þessum árum hefur Guðjón dæmt marga af stórlekjum íslensk handbolta þar má nefna fjölmarga úrslitaleiki í Íslandsmót og bikarkeppni HSÍ.

Guðjón varð IHF dómari árið 1990 og síðar EHF dómari frá árinu 1993. Dæmdi hann sem slíkur til ársins 2005 þegar hann og Ólafur félagi hans lögðu flauturnar á hilluna.

Að ferlinum loknum hefur Guðjón sinnt starfi eftirlitsmanns hjá EHF, þar sem hætti síðasta haust sökum aldurs.

Frá þeim tíma þegar Guðjón hætti störfum sem dómari starfað ötullega að þróun handknattleiksdómgæslu á Íslandi. Hann hefur setið í dómaranefnd HSÍ og sinnt formennsku þeirra nefndar með hléum frá árinu 2007.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -