Norska landsliðskonan Nora Mørk hefur ekki náð sér fyllilega á strik með liði sínu Team Esbjerg á síðari hluta tímabilsins. Smávægileg meiðsli auk tíðra veikinda hafa verið að valda Mørk vandræðum í vor.
„Ég hef smitast af umgangspestum og streptókokkum, fengið hita og hvaðeina. Ég hef verið frekar niðurdregin en núna er ég nálægt því að snúa aftur,“ sagði Mørk í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV 2.
Mørk, sem er 35 ára hægri skytta, hefur verið á meðal bestu handknattleikskvenna heims um langt árabil og vann fjöldann allan af gullverðlaunum á stórmótum með norska landsliðinu undir stjórn Þóris Hergeirssonar.
Esbjerg varð deildarmeistari í dönsku úrvalsdeildinni og hefur leik gegn Sønderjyske á útivelli í úrslitakeppni um meistaratitilinn í næstu viku, þar sem Mørk gæti snúið aftur á völlinn.



