Hin norska Camilla Herrem greindi nýverið frá því að hún hafi sigrast á brjóstakrabbameini. Stuttu eftir greiningu sneri Herrem aftur á völlinn með liði sínu Sola. Hún hrósar eiginmanni sínum og þjálfara Steffen Stegavik í hástert fyrir það hvernig hann hefur staðið við bakið á henni.
Í sameiningu tókst þeim að aðskilja handbolta og baráttuna við krabbameinið eins vel og hægt var í því skyni að einbeita sér að hvorri baráttu fyrir sig þegar þess þurfti.
„Þetta hefði ekki getað gengið ef hann hefði ekki verið mér við hlið,“ sagði Herrem í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV2 Sport.
Hún hefur verið laus við krabbameinið frá því í desember á síðasta ári en heldur áfram í meðferð til eftirfylgni á milli þess sem Herrem og Stegavik berjast með Sola í norsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.


