- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Heiðruðu minningu Björgvins Halldórssonar tónlistarmanns

- Auglýsing -

Einnar mínútu þögn var fyrir Hafnarfjarðarslag Hauka og FH í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld til minningar um tónlistarmanninn og Hafnfirðinginn Björgvin Halldórsson sem varð bráðkvaddur í gærmorgun, tæplega 75 ára gamall.

Leikmenn beggja liða léku með sorgarbönd.

Áhorfendur risu úr sætum og minntust Björgvins Halldórssonar tónlistarmanns með einnar mínútu þagnar fyrir viðureign Hauka og FH í kvöld. Ljósmynd/J.L.Long

Stórsöngvarinn Björgvin fæddist í Hafnarfirði og varð fyrstur tónlistarmanna til að fá sérstaka stjörnu sér til heiðurs í stéttina fyrir framan Bæjarbíó í Hafnarfirði. Björgvin átti einstakan tónlistarferil sem spannaði nærri sex áratugi. Hann setti svo sannarlega mark sitt á tónlistarsögu Íslendinga auk þess að halda merki Hafnarfjarðar sérstaklega á lofti.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -