- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Heilt yfir vorum við alveg hrikalega góðir

Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram. Ljósmynd /Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


„Tímabilið var alveg magnað en um leið þurftum við að hafa mikið fyrir árangrinum. Ekki er aðeins um að ræða vinnu núna heldur sem hefur verið undanfarin ár,“ segir Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram í handknattleik karla. Hann stýrði á dögunum Fram til sigurs á Val í úrslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn í þremur leikjum. Áður hafði Fram lagt Hauka og FH á leiðinni í úrslitin. Á fimmtudaginn var Einar valinn þjálfari ársins í Olísdeild karla í uppskeruhófi HSÍ þar sem tímabilið í Olís- og Grill 66-deildunum var gert upp.

Að þessu árangri hefur komið margt fólk innan félagsins því þetta er langt frá því að vera vinna fárri manna heldur sterkrar heildar innan vallar sem utan

Margar hendur komið að málum

„Það er skemmtilegt þegar uppskeran af mikill vinnu skilar sér í jafn ríkum mæli og nú. Að þessum árangri hefur komið margt fólk innan félagsins því þetta er langt frá því að vera vinna fárra manna heldur sterkrar heildar innan vallar sem utan,“ segir Einar sem var einnig þjálfari karlaliðs Fram þegar félagið vann síðast Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki fyrir 12 árum.

„Við vorum heilt yfir alveg hrikalega góðir í vetur,“ segir Einar sem kom á ný til starfa hjá Fram 2021 eftir nokkurra ára fjarveru við þjálfun innanlands og utan.

Einar Jónsson og Ágúst Þór Jóhannsson þjálfarar ársins í Olísdeildum karla og kvenna. Þeir verða væntanlega ekki jafn kumpánlegir þegar þeir mætast á vellinum á næstu leiktíð. Ljósmynd/HSÍ

Frábær stuðningur – nýtt hverfi

„Það er gott að gefa til baka til allra þeirra stjórnarmanna og annarra sjálfboðaliða sem endalaust gefa sér tíma til þess að halda starfinu gangandi. Þar á ofan var stuðningurinn frábær og alveg frábært að verða vitni að því hvernig stuðningurinn magnaðist upp og þetta nýja hverfi sem Fram er ekki fyrir svo löngu flutt í, kom með okkur,“ segir Einar.

Rúnar Kárason t.v. og Einar Jónsson þjálfari Fram. Mynd/Ívar

Veðjuðu á Einar

Einar kom á ný til Fram sem þjálfari 2021. Var það ekki alveg óumdeilt en stjórnendur Fram voru vissir í sinni sök. Þeir töldu að Einar væri rétti maðurinn ásamt fleirum til að halda utan um efnilegan hóp yngri leikmanna og skila þeim upp í meistaraflokk með það að markmiði að ná alvöru árangri.

Til viðbótar hefur Haraldur Þorvarðarson unnið ótrúlegt starf. Hann hefur haldið utan um U-liðið sem vann meðal annars Grill-deildina fyrir ári.

Yngri leikmenn skila sér

Í upphafi þjálfaði Einar einnig þriðja flokk karla samhliða meistaraflokknum. Hann segir að minnsta kosti tíu strákar fæddir 2003, 2004 og 2005 hafa skilað sér upp í meistaraflokk og leikið stórt hlutverk í meistaraliðinu á leiktíðinni. „Það er alveg einstakt og er ekki síst að þakka frábæru starfi hjá unglingaráðinu á síðustu árum. Til viðbótar hefur Haraldur Þorvarðarson unnið ótrúlegt starf. Hann hefur haldið utan um U-liðið sem vann meðal annars Grill-deildina fyrir ári. Margir af þeim eru í meistaraflokki í dag.“

Haraldur Þorvarðarson og Einar Jónsson, þjálfarar Fram. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Einar, og hans hægri hönd, fyrrgreindur Haraldur, voru óhræddir við að tefla yngri leikmönnum fram í leikjum, jafnt í fyrra sem og í vetur sem leið. Þeir fengu að sjóast og gera sín mistök.

Ég var gjörsamlega fokheldur eftir þann leik

Ætluðum að vinna í fyrra

Einar segir að Íslandsmeistaratitilinn í vor hafi komið ári síðar en hann hafi sett stefnuna á. „Við ætluðum okkur titilinn fyrir ári síðan. Stefnan var að koma inn í úrslitakeppnina með trukki, vera úrslitakeppnislið eftir að hafa verið í fjórða, fimmta og sjötta sæti allt keppnistímabilið. Þegar nær dró lokum tímabilsins í fyrra má segja að spilaborg okkar hafi hrunið, stór hluti leikmannahópsins meiddist,“ segir Einar og nefnir m.a. Reynir Þór Stefánsson, Marel Baldvinsson, Kjartan Þór Júlíusson, Tryggva Garðar Jónsson og Þorstein Gauta Hjálmarsson.

Rúnar Kárason kallaði alla leikmenn liðsins saman og sagði þeim að Fram yrði Íslandsmeistari eftir ár. Til þess yrðu menn að æfa og haga sér í samræmi við það.

Glaðbeittir leikmenn Íslandsmeistaraliðs Fram. Magnús Öder Einarsson lyftir Íslandsbikarnum. Ljósmynd/HSÍ

Rúnar kallaði menn saman

„Allavega helmingur af leikmannahópnum sem var í sigurliðinu að þessu sinni var meira og minna frá keppni eftir áramót í fyrra. Þar með gátum við ekki gert þá atlögu að titlinum sem til stóð að gera,“ segir Einar og bætir við að eftir tímabilið hafi Rúnar Kárason kallað alla leikmenn liðsins saman og sagt þeim að Fram yrði Íslandsmeistari eftir ár. Til þess yrðu menn að æfa og haga sér í samræmi við það.

Var gjörsamlega fokheldur

Einar segir ennfremur að fáeinir slakir leikir Fram-liðsins í vetur hafi vakið menn upp. „Tapleikur fyrir ÍR eftir áramótin varð til þess að vekja okkur. Við lékum bara illa og urðum að líta í eigin barm. Eins var tapleikurinn fyrir Stjörnunni í síðustu umferð Olísdeildarinnar okkur þörf áminning. Þá lékum við mjög illa og tapið kostaði okkur annað sæti deildarinnar sem hefði verið besti árangur Fram í deildinni um langt árabil. Ég var gjörsamlega fokheldur eftir þann leik,“ segir Einar léttur í bragði þegar hann lítur um öxl.
„Eftir á að hyggja gerði tapið fyrir Stjörnunni okkur gott. Það vakti okkur upp fyrir úrslitakeppnina sem gekk síðan hrikalega vel, átta sigrar í níu leikjum.“

Sem þjálfari eru maður fyrst og fremst í hlutverki þess sem styrkir og styður meðan leikmenn leggja á sig þá vinnu sem þarf til þess að ná árangri

Margt sameiginlegt með sigurliðum

Þegar Einar er spurður út í samanburð á meistaraliði Fram 2025 og því sem hann stýrði til sigurs 2013 segir Einar þau eiga ýmislegt sameiginlegt þrátt fyrir að vera mjög ólík. „Til dæmis hafa bæði lið sterka leiðtoga, stemningin í leikmannahópunum var frábær. Þegar öllu er botninn hvolft þá er svo margt sem er í höndum leikmannanna sjálfra. Sem þjálfari eru maður fyrst og fremst í hlutverki þess sem styrkir og styður meðan leikmenn leggja á sig þá vinnu sem þarf til þess að ná árangri.

Ég get líkt stemningunni innan hópsins nú við meistaraliðið 2013 þótt um sé að ræða tvö mjög ólík lið þegar kemur að samsetningu leikmannahópsins og leikskipulagi,“ segir Einar Jónsson sem fær nokkrar vikur til að kasta mæðinni eftir tímabilið áður en undirbúningur fyrir það næsta hefst.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -