Alþjóða handknattleikssambandið hefur aflýst heimsmeistarakeppni félagsliða í karlaflokki þetta árið. Ástæðan er kórónuveirufaraldurinn sem tröllríður heimsbyggðinni. Keppnin hefur verið haldin frá árinu 1997 en þar mætast fremstu félagslið hverrar heimsálfu. Fram til þessa hefur keppnin farið fram í Doha í Katar en að þessu sinni stóð til að Dammam í Sádi-Arabíu yrði vettvangur keppninnar.
Barcelona hefur unnið mótið undanfarin tvö ár. Á síðasta ári lagði Barcelona lið THW Kiel í úrslitaleik.
Íslenskir handknattleiksmenn og þjálfarar hafa oft komið við sögu í keppninni og staðið uppi sem sigurvegarar. Má þar m.a. nefna Alfreð Gíslason, Erling Richardsson, Bjarka Má Elísson, Guðjón Val Sigurðsson, Aron Pálmarsson og Ólaf Stefánsson.