- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hergeir framlengdi við bikarmeistarana

- Auglýsing -

Hergeir Grímsson, nýkrýndur bikarmeistari með Haukum, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Handkastið greinir frá.

Hergeir, sem er 29 ára leikstjórnandi, er á sínu öðru tímabili með Haukum eftir að hafa leikið með Stjörnunni um tveggja ára skeið þar á undan.


Ferilinn hóf hann hins vegar hjá uppeldisfélagi sínu Selfossi og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2019.

Hergeir hefur verið í minna hlutverki á yfirstandandi tímabili vegna frábærrar frammistöðu Freys Aronssonar, hins 17 ára gamla leikstjórnanda sem var valinn besti leikmaður bikarvikunnar eftir að Haukar urðu bikarmeistarar fyrir viku síðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -