- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hetja Hauka auðmjúk: Ég átti engan þátt í að koma okkur í bikarhelgina

- Auglýsing -

Grétar Ari Guðjónsson átti sannkallaðan stórleik í marki Hauka þegar liðið varð bikarmeistari á heimavelli sínum Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum með 28:21 sigri á ÍR í úrslitum í kvöld.

„Tilfinningin er frábær. Maður er bara þakklátur að fá að taka þátt í þessu. Ég er nýlentur á klakanum og það var ekki ég sem kom okkur í „Final 4.“ Ég átti engan þátt í því,“ sagði Grétar Ari í samtali við handbolta.is eftir leikinn.


Grétar Ari fór hamförum og varði 19 skot í leiknum, sem gerir magnaða 51,4% hlutfallsmarkvörslu.

„Ég er þvílíkt þakklátur að fá að taka þátt í þessu og fá að gefa til baka til liðsins fyrir að gefa manni þetta og allt hitt síðustu ég man ekki hvað mörg árin,“ bætti hann við.

Tæki allt kvöld að nefna þá sem ég er þakklátur

Hverju þakkarðu þína frammistöðu?

„Það eru svo margir, það tæki allt kvöld að nefna þá. Það sem mér dettur helst í hug er konan mín, sem er ennþá úti í Grikklandi með hundana okkar, fyrir að leyfa mér að koma. Hún gat ekki komið því það er flókið mál að flytja hunda til landsins.

Það er hún fyrir að styðja mig og leyfa mér að koma hérna fyrr. Síðan eru þjálfarar, þjálfarateymið og Aron Rafn sem getur ekki verið með okkur en hjálpar helling. Ég get nefnt Einar Jónsson fyrrverandi yngri flokka þjálfarann minn fyrir mjög góð ráð.

Það eru fleiri og fleiri. Foreldrar mínir fyrir að taka vel á móti mér og láta mér líða vel. Félagið auðvitað, formaðurinn Andri. Bara allir hjá Haukunum í rauninni, þetta er magnað dæmi,“ sagði þakklátur Grétar Ari.


Hann gekk nýverið til liðs við Hauka að nýju eftir fimm og hálft ár í atvinnumennsku, síðast hjá AEK Aþenu í Grikklandi.

„Já, það er augljóslega óskastaða. Það er leiðinlegt að við vorum í góðri stöðu í deildinni líka en það er svo ánægjulegt að geta gefið eitthvað til baka eftir allt sem maður hefur fengið,“ sagði Grétar Ari Guðjónsson í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -