- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hiklaust verður dregið í aðra umferð bikarsins

Dregið verður í aðra umferð Poweradebikars karla á mánudaginn. Ljósmynd/Raggi Óla
- Auglýsing -


Þótt ekki hafi verið leikið í fyrstu umferð Poweradebikarkeppni karla í handknattleik þá kemur það ekki í veg fyrir að ákveðið hefur verið að draga í 16 liða úrslit, aðra umferð, bikarkeppninnar mánudaginn 14. október kl. 14 á skrifstofu HSÍ.

Beint streymi verður frá drættinum á miðlum HSÍ. Fulltrúum félaganna er velkomið að vera á staðnum þegar dregið verður.

Dregið verður í átta viðeignir.

Eftirfarandi lið eru í pottinum:
Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, Haukar, HK, ÍBV, ÍR, KA, Stjarnan, Valur.

Einnig liðin sem dregin voru saman í fyrstu umferð:
ÍBV 2 – Þór.
Víðir – Hörður.
ÍH – Selfoss.
Hvíti riddarinn – Víkingur.

Sjá einnig: Til stendur að draga í fyrstu umferð Powerade bikarkeppni kvenna

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -